Frank Lampard næsti stjóri Derby?

Frank Lampard.
Frank Lampard. AFP

Frank Lampard er einn þeirra 20 sem sótt hafa um starf knattspyrnustjóra hjá enska B-deildarfélaginu Derby County. Gary Rowett yfirgaf félagið til að taka við Stoke á dögunum.

Lampard er fyrrverandi landsliðsmaður Englands og markahæsti leikmaður Chelsea frá upphafi. Hann hefur að undanförnu unnið sem spekingur á BT-sjónvarpsstöðinni. 

Ekki er búist við að Derby ráði nýjan stjóra fyrr en í næstu viku, en Lampard hefur verið orðaður við fleiri störf, eins og Oxford og Ipswich. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert