Alli og Eriksen næstir í röðinni

Harry Kane, Dele Alli og Christian Eriksen skipa eina öflugustu …
Harry Kane, Dele Alli og Christian Eriksen skipa eina öflugustu sóknarþrennuna í ensku úrvalsdeildinni. AFP

Deli Alli og Christian Eriksen munu á næstu dögum skrifa undir langtímasamning við enska knattspyrnufélagið Tottenham en það er Telegraph sem greinir frá þessu í dag. Harry Kane, framherji liðsins skrifaði fyrr í dag undir nýjan sex ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið.

Alli og Eriksen hafa báðir verið lykilmenn í liðinu síðan Mauricio Pochettino tók við stjórnartaumunum hjá félaginu árið 2014. Kane var sterklega orðaður við Real Madrid á síðustu leiktíð en nú er ljóst að hann verður áfram í herbúðum liðsins á næstu árum.

Þeir Alli og Eriksen líka verið orðaður við brottför frá félaginu að undanförnu en Tottenham er ekki tilbúið að borga leikmönnum sínum jafn góð laun og toppliðin í ensku úrvalsdeildinni hafa verið að gera. Þetta eru góðar fréttir fyrir stuðningsmenn Tottenham en liðið hefur vaxið mikið undir stjórn Pochettino.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert