Swansea hafnaði tilboðum í Mawson og Fabiański

Alfie Mawson og Łukasz Fabiański eru eftirsóttir þessa dagana.
Alfie Mawson og Łukasz Fabiański eru eftirsóttir þessa dagana. AFP

Velska knattspyrnufélagið Swansea City hefu hafnað tveimur tilboðum í þá Alfie Mawson og Łukasz Fabiański en það er Sky Sports sem greinir frá þessu. Swansea féll í ensku B-deildina í haust en þeir Mawson og Fabiański voru á meðal bestu manna liðsins, á síðustu leiktíð.

Mawson er 24 ára gamall miðvörður sem kom til félagsins frá Barnsley árið 2016. Hann spilaði alla leiki Swansea í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Fabiański er 33 ára gamall markmaður sem hefur spilað með liðinu frá árinu 2014 en hann spilaði einnig alla leiki liðsins á síðasta tímabili.

Manuel Pellegrini tók við stjórnartaumunum hjá West Ham á dögunum en hann stýrði Manchester City til sigurs í ensku úrvalsdeildinni, tímabilið 2013-2014. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert