Knattspyrnumaðurinn Nabil Fekir er ekki á leiðinni til Liverpool en félag hans í Frakklandi, Lyon, hefur staðfest þetta.
Fekir, 24 ára, var talinn vera á leiðinni til Liverpool í læknisskoðun á dögunum áður en félagsskipti hans milli liðanna myndu ganga í gegn og var kaupverðið talið nema um 60 milljónum evra.
Nú hefur forseti Lyon, Jean-Michel Aulas, sagt að samningsviðræður félaganna strönduðu og fullyrðir hann að Fekir verði í Frakklandi á næsta tímabili.
„Lyon vill koma því á framfæri að samræður við Liverpool um félagsskipti Nabil Fekir gengu ekki upp og hefur félagið komist að þeirri niðurstöðu að hætta í samningsviðræðum,“ segir í yfirlýsingu frá félaginu.