Jorginho færist nær Manchester City

Jorginho í leik með ítalska landsliðinu gegn Frökkum í byrjun …
Jorginho í leik með ítalska landsliðinu gegn Frökkum í byrjun mánaðarins. AFP

Knattspyrnumaðurinn Jorginho færist nær félagsskiptum til Manchester City á Englandi samkvæmt Sky Sports þarlendis.

Þessi 26 ára ítalski miðjumaður er á mála hjá Napoli á Ítalíu en hann spilaði 37 leiki fyrir liði á síðasta tímabili og skoraði þrjú mörk. Einnig á hann átta landsleiki að baki fyrir Ítalíu.

Kaupverðið er talið nema 47 milljónum punda og eiga félögin enn eftir að ganga frá ýmsum samningsatriðum. Þau eiga þó að vera langt komin í þeim efnum og munu félögin til að mynda sennilega mætast í æfingaleik í sumar.

Jorginho byrjaði ferilinn hjá Verona áður en hann gekk til liðs við Napoli árið 2013 en þar varð hann ítalskur bikarmeistari árið 2014.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert