Bernd Leno til Arsenal

Bernd Leno er genginn til liðs við Arsenal.
Bernd Leno er genginn til liðs við Arsenal. AFP

Bernd Leno er ganga til liðs við enska knattspyrnufélagið Arsenal en þetta staðfesti Bayer Leverkusen, fyrrverandi félag hans, á heimasíðu sinni í kvöld. Arsenal borgar í kringum 20 milljónir punda fyrir þennan 26 ára gamla markmann.

Félagaskiptin hafa lengið í loftinu í allt sumar en Leno hefur spilað með Bayer Leverkusen frá árinu 2011. Hann á að baki rúmlega 230 leiki fyrir þýska félagið í öllum keppnum. Unai Emery tók við stjórnartaumunum hjá félaginu fyrr í þessum mánuði af Arséne Wenger og ætlar sér stóra hluti með liðið á næstu leiktíð. Leno er annar leikmaðurinn sem Emery fær til félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert