West Ham kaupir Fabianski

West Ham hefur keypt pólska markmanninn Lukasz Fabianski.
West Ham hefur keypt pólska markmanninn Lukasz Fabianski. AFP

Pólski knattspyrnumarkvörðurinn Lukasz Fabianski er genginn til liðs við West Ham frá Swansea. West Ham hefur verið í leit að markmanni síðan lánssamningur Joe Hart rann út í lok tímabilsins.

Fabianski, sem er 33 ára gamall, hefur viljað losna frá Swansea eftir að liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni. Fyrr í vikunni gerði West Ham tilboð sem var hafnað en nú virðast liðin hafa náð saman um kaupverð.

Fabianski er sem stendur í Rússlandi með pólska landsliðinu en tók ekki þátt í 2:1 tapi liðsins gegn Senegal í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert