Liverpool of svifaseint

Nabil Fekir er með franska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Rússlandi …
Nabil Fekir er með franska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Rússlandi um þessar mundir. AFP

Jean-Michael Aulas, forseti knattspyrnufélagsins Lyon í Frakklandi, segir að Liverpool hafi verið of svifaseint í eftirför sinni á Nabil Fekir og þess vegna sé kappinn ekki á leiðinni til Englands.

Samn­ingsviðræður fé­lag­anna strönduðu á dögunum og Aulas hefur ekki verið feiminn við að skella skuldinni á forráðamenn Liverpool. Ákvörðun þeirra í Bítlaborginni að draga lappirnar hefur orðið til þess að Real Madrid hefur blandast í baráttuna um þennan 24 ára sóknarmann.

Fekir er með franska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Rússlandi þessa dagana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert