Chelsea staðfestir brottför Conte

Antonio Conte.
Antonio Conte. AFP

Chelsea staðfestir á vef sínum í dag að félagið hafi slitið samstarfinu við knattspyrnustjórann Antonio Conte.

Conte var við stjórnvölinn hjá Lundúnaliðinu í tvö ár. Undir hans stjórn varð Chelsea Englandsmeistari í fyrra og í ár hampaði liðið bikarmeistaratitlinum en hafnaði í 5. sæti í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert