Verður Hazard arftaki Ronaldo?

Eden Hazard skoraði annað mark Belga í dag.
Eden Hazard skoraði annað mark Belga í dag. AFP

Belgíski fótboltamaðurinn Eden Hazard gaf það í skyn eftir leik Belga og Englendinga um þriðja sætið á HM í Rússlandi í dag að hann myndi yfirgefa Chelsea í sumar til að prófa eitthvað nýtt. 

Hazard sagði fyrir HM að spænska stórveldið Real Madrid vissi hvað þyrfti að gera til að fá hann til liðsins og gæti hann átt að fylla í skarðið sem Cristiano Ronaldo skilur eftir sig. 

„Eftir sex frábær ár hjá Chelsea gæti verið kominn tími á að prófa eitthvað nýtt. Ef félagið leyfir mér að fara, þá veit fólk hvert ég vil fara,“ sagði Hazard í samtali við HLN-sjónvarpsstöðina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert