Leicester að kaupa markmann Liverpool

Danny Ward er á leiðinni í Leicester.
Danny Ward er á leiðinni í Leicester. AFP

Leicester og Liverpool hafa komist að samkomulagi um að fyrrnefnda félagið kaupi Danny Ward, markmann hjá Liverpool, á tíu milljónir punda. Leicester er að leita að samkeppni fyrir Kasper Schmeichel sem hefur verið aðalmarkmaður liðsins síðan árið 2011.

Ward hefur aðeins leikið þrjá leiki með Liverpool síðan hann kom til félagsins árið 2012. Hann var að láni hjá Huddersfield tímabilið 2016/17 og hjálpaði liðinu að komast upp í ensku úrvalsdeildina. 

Leicester ætlar ekki að selja Schmeichel, þrátt fyrir að Chelsea hafi áhuga á Dananum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert