Lamela framlengir við Tottenham

Erik Lamela.
Erik Lamela. AFP

Knattspyrnumaðurinn Erik Lamela hefur skrifað undir nýjan samning við Tottenham sem gildir til ársins 2022.

Lamela, 26 ára, kom til Tottenham sumarið 2013 frá Roma fyrir 30 milljónir punda sem var þá metfé fyrir félagið. Hann hefur spilað 154 leiki fyrir Tottenham og skorað 23 mörk en hann var frá í um ár vegna meiðsla á mjöðm á síðasta ári.

Fyrri samningur Lamela átti að renna út eftir tvö ár og var hann meðal annars orðaður við endurkomu til Ítalíu en Inter var sagt hafa áhuga argentínska sóknarmanninum. Nú er aftur á móti ljóst að hann verður áfram í Lundúnum rétt eins og Heung-Min Son sem einnig skrifað undir nýjan samning í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert