Leicester kaupir varamarkmann Liverpool

Ljósmynd/Heimasíða Leicester

Leicester City hefur fest kaup á markverðinum Danny Ward frá Liverpool en kaupverðið er talið nema um 12,5 milljónum punda.

Ward tók þá ákvörðun að yfirgefa Liverpool eftir að hann varð fjórði markvörður liðsins í kjölfar kaupa félagsins á Alisson Becker fyrir metfé frá Roma í gær.

Ward gekk til liðs við Liverpool árið 2012 og var lánaðir til félaga á borð við Morecambe, Aberdeen og Huddersfield á tíma sínum í Bítlaborginni. Hann spilaði alls þrjá leiki fyrir Liverpool.

Ward, sem hefur spila fjóra landsleiki fyrir welska landsliðið, gerir fjögurra ára samning við Leicester og mun berjast við Danann Kasper Schmeichel um markvarðarstöðu liðsins í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert