Liverpool vann en United gerði jafntefli

Juan Mata skoraði mark United.
Juan Mata skoraði mark United. Ljósmynd/@ManUtd

Liverpool vann 2:0-sigur á Blackburn á útivelli í æfingaleik í fótbolta í gærkvöldi. Daniel Sturridge og Lazar Markovic gerðu mörk liðsins, en óljóst er hvort þeir leiki með liðinu á komandi leiktíð.

Staðan í hálfleik var markalaus, en James Milner brenndi af úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik. Liverpool var betri aðilinn í síðari hálfleik og tryggði sanngjarnan sigur. 

Manchester United lék sinn fyrsta leik á undirbúningstímabilinu á móti Club America frá Mexíkó, í Arizona í Bandaríkjunum. Henry Martin kom mexíkóska liðinu yfir á 59. mínútu en Juan Mata jafnaði á 78. mínútu og þar við sat. 

Næst á dagskrá hjá United er leikur við San Jose frá Bandaríkjunum á laugardagskvöldið á meðan Liverpool spilar við Dortmund í Charlotte í Bandaríkjunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert