Matip meiddist í ósigri Liverpool

Virgil van Dijk skorar fyrsta mark leiksins í kvöld með …
Virgil van Dijk skorar fyrsta mark leiksins í kvöld með skalla. AFP

Dortmund lagði Liverpool að velli, 3:1, á alþjóðlega knattspyrnumótinu í Bandaríkjunum í kvöld en leikið var í Charlotte í Norður-Karólínu.

Virgil van Dijk kom Liverpool yfir með skallamarkið á 25. mínútu og staðan var 1:0 fram í miðjan síðari hálfleik. Þá jafnaði Christian Pulisic fyrir Dortmund úr vítaspyrnu. Allt stefndi í jafntefli en rétt fyrir leikslok skoraði Pulisic aftur og Jacob Bruun Larsen bætti við þriðja marki þýska liðsins.

Joel Matip miðvörður Liverpool fór meiddur af velli snemma leiks og Jürgen Klopp knattspyrnustjóri sagði eftir leikinn að um einhverja tognun eða rifu í vöðva væri að ræða og það kæmi betur í ljós eftir einn eða tvo daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert