Richarlison á leiðinni í læknisskoðun

Richarlison gæti orðið dýrasti leikmaður í sögu Everton.
Richarlison gæti orðið dýrasti leikmaður í sögu Everton. AFP

Brasilíski fótboltamaðurinn Richarlison er á leiðinni í læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Everton. Everton er að kaupa sóknarmanninn af Watford á 50 milljónir punda og verður hann dýrasti leikmaður í sögu Everton.

Everton keypti Gylfa Þór Sigurðsson af Swansea á 45 milljónir punda síðasta sumar og er hann sem stendur sá dýrasti. Watford borgaði Fluminense 13 milljónir punda fyrir þjónustu Richarlison síðasta sumar. 

Marco Silva, knattspyrnustjóri Everton, fékk Richarlison til Watford á sínum tíma og er hann mikill aðdáandi Brasilíumannsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert