Terry blæs á sögusagnirnar

John Terry.
John Terry. AFP

Enski knattspyrnumaðurinn John Terry hefur ekki lagt skóna á hilluna, þrátt fyrir fréttir þess efnis hjá breskum fjölmiðlum í vikunni.

Terry var í áraraðir í lykilhlutverki hjá Chelsea og vann hann ensku deildina í fjórum sinnum sem og Meistaradeild Evrópu einu sinni. Hann gekk svo í raðir Aston Villa í ensku B-deildinni síðasta sumar en liðinu mistókst að fara upp um deild og yfirgaf hann félagið í kjölfarið. 

Hann hefur verið orðaður við Derby County, þar sem fyrrverandi liðsfélagi hans hjá Chelsea, Frank Lampard er við stjórn. „Bara svo það sé á hreinu þá er ég ekki búinn að leggja skóna á hilluna, ég er í fríi með fjölskyldunni og ég er að íhuga næsta skref," skrifaði Terry á Instagram í gær. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert