Danny Ings í Southampton

Danny Ings skrifar undir hjá Southampton.
Danny Ings skrifar undir hjá Southampton. Ljósmynd/Southamptonfc.com

Enski knattspyrnumaðurinn Danny Ings hefur verið lánaður úr Liverpool í Southampton og gildir lánssamningurinn út leiktíðina. Southampton hefur svo forkaupsrétt á Ings eftir tímabilið. 

Ings kom til Liverpool frá Burnley árið 2015, en spilaði aðeins 14 deildarleiki og skoraði í þeim þrjú mörk. Ings spilaði afar vel með Burnley, áður en hann færði sig yfir til Liverpool. Hann hefur leikið einn landsleik fyrir England. 

Framherjinn var meiddur nánast allt síðasta tímabil, en er nú orðinn heill heilsu og styrkir hann lið Southampton töluvert. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert