Aron Einar ekki með í fyrsta leiknum

Aron Einar Gunnarsson.
Aron Einar Gunnarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, er ekki í leikmannahópi Cardiff sem í dag leikur sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni síðan 2015.

Aron lék hálfmeiddur með Íslandi á heimsmeistaramótinu í Rússlandi í sumar og varð svo fyrir því óláni að meiðast aftur lítillega á undirbúningstímabili Cardiff. Það var talið að hann yrði klár í slaginn í dag en svo er ekki, og situr hann því hjá í þessum fyrsta leik Cardiff gegn Bournemouth sem hefst klukkan 14.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert