Markmaðurinn David Ospina er genginn til liðs við ítalska knattspyrnufélagið Napoli á láni út leiktíðina. Ospina kemur til félagsins frá Arsenal á Englandi en félagið keypti Bernd Leno í sumar og því hefur Ospina fallið aftar í goggunarröðina eftir komu Þjóðverjans.
Napoli hefur verið í leita að nýjum markmanni síðan að Alex Meret handarbrotnaði á æfingu liðsins í síðasta mánuði. Ospina kom til Arsenal frá Nice í Frakklandi árið 2014 en honum tókst aldrei að vinna sér inn fast byrjunarliðssæti hjá félaginu en hann er markmaður númer eitt hjá kólumbíska landsliðinu.