Mignolet í viðræðum við Napoli

Simon Mignolet gæti verið á leið til Napoli.
Simon Mignolet gæti verið á leið til Napoli. AFP

Knattspyrnumaðurinn Simon Mignolet gæti verið á leiðinni til Napoli frá Liverpool. Þetta staðhæfir umboðsmaður hans en hann segir að félögin séu í viðræðum. 

Með komu Alisson til Liverpool er Mignolet orðinn þriðji markvörður félagsins. Napoli er á sama tíma í vandræðum með markvarðarstöðuna hjá sér. 

„Viðræður eru hafnar en það er ekkert samkomulag. Það er þó vilji beggja liða að ná saman. Liverpool vill halda honum en Simon verður að og vill spila. Hann á skilið að vera í toppliði.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert