Ragnar Klavan seldur frá Liverpool

Ragnar Klavan skoraði eitt mark fyrir Liverpool.
Ragnar Klavan skoraði eitt mark fyrir Liverpool. AFP

Knattspyrnumaðurinn Ragnar Klavan gekk í dag í raðir ítalska félagsins Cagliari frá Liverpool á Englandi. Cagliari borgar um tvær milljónir punda fyrir varnarmanninn, sem kom til Liverpool frá Augsburg árið 2016. 

Klavan spilaði yfir 50 leiki fyrir Liverpool og skoraði eina deildarmarkið sitt í sigri á Burnley á síðustu leiktíð, en hann skoraði einnig eitt mark í deildabikarnum. Klavan hefur leikið 124 leiki fyrir eistneska landsliðið og skorað í þeim þrjú mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert