„Bobby getur spilað blindandi“

Roberto Firmino kom inn á sem varamaður fyrir Daniel Sturridge …
Roberto Firmino kom inn á sem varamaður fyrir Daniel Sturridge í gær og skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma. AFP

Sadio Mané, sóknarmaður enska knattspyrnufélagsins Liverpool, hrósaði liðsfélaga sínum, Roberto Firmino, í hástert eftir 3:2-sigur liðsins gegn franska stórliðinu Paris SG í Meistaradeild Evrópu á Anfield í gær.

Firmino byrjaði leikinn í gær á bekknum en hann meiddist á auga í 2:1-sigri Liverpool á Tottenham á Wembley í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Í fyrstu var óttast að hann missti af leiknum gegn PSG en Firmino kom inn á sem varamaður í gær á 72. mínútu og skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma.

„Ég held að Bobby þurfi ekki augu til þess að spila og ég sagði honum það. Ég sendi honum skilaboð á mánudaginn og sagði honum að við þyrftum á honum að halda gegn PSG. Það hafa allir séð mörkin hans þar sem hann horfir ekki einu sinni á markið eða boltann.“

„Bobby getur spilað blindandi, hann er það góður, og ég lét hann vita af því í skilaboðunum sem ég sendi honum,“ sagði Mané í samtali við enska fjölmiðla eftir leikinn á Anfield í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert