Brasilíumaðurinn Roberto Firmino var hetja Liverpool í Meistaradeildarleiknum gegn frönsku meisturunum í Paris SG á Anfield í gærkvöld.
Firmino, sem meiddist illa á auga í leiknum gegn Tottenham um síðustu helgi, kom inná á 72. mínútu og skoraði sigurmarkið á lokamínútu leiksins með afar smekklegum hætti.
Þegar Firmino var í spjalli við fréttamenn eftir leikinn gekk landi hans, Neymar, inn í viðtalið og óskaði Firmino til hamingju. Neymar sagði við hetju Liverpool; „Til hamingju. Þú spilaðir frábærlega.“
Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool sagði eftir leikinn að Firmino hafi ekki átt neinn möguleika á að spila við Paris SG þar til hann mætti á æfingu í gærmorgun og sagðist vera klár í slaginn. Klopp ákvað að byrja með Brasilíumanninn á bekknum og tók Daniel Sturridge stöðu hans og hann skoraði fyrsta markið í 3:2 sigri Liverpool.