Samdi við Chelsea til fimm ára

Ethan Ampadu tekur í höndina á Maurizio Sarri, stjóra Chelsea.
Ethan Ampadu tekur í höndina á Maurizio Sarri, stjóra Chelsea. AFP

Hinn 18 ára gamli Ethan Ampadu, landsliðsmaður Wales í knattspyrnu, hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við enska úrvalsdeildarliðið Chelsea.

Chelsea keypti Ampadu frá Exeter í fyrra og hefur hann komið við sögu í sjö leikjum með Lundúnaliðinu en hann getur bæði leikið í vörninni og á miðjunni.

„Ég er virkilega stoltur og ég hlakka til næstu fimm ára. Allt sem ég þarf að gera núna er að halda áfram að leggja hart að mér og vonandi munu góðir hlutir gerast,“ segir Ampadu á vef Chelsea.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert