Leno fær loks tækifæri í rammanum

Bernd Leno.
Bernd Leno. AFP

Þjóðverjinn Bernd Leno fær loksins tækifæri á milli stanganna hjá Arsenal í kvöld en þá tekur liðið á móti úkraínska liðinu Vorskla í 1. umferð Evrópudeildarinnar í knattspyrnu.

Arsenal keypti Leno í sumar og greiddi fyrir hann 22,5 milljónir punda. Margir héldu að Þjóðverjinn yrði markvörður númer eitt hjá Lundúnaliðinu á tímabilinu en Tékkinn Petr Cech hefur varið mark Arsenal í fyrstu leikjum þess á tímabilinu.

Unai Emery, knattspyrnustjóri Arsenal, staðfesti á fréttamannafundi í gær að Leno muni byrja inni á í kvöld en hann er 26 ára gamall og kom til Arsenal frá þýska liðinu Bayer Leverkusen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert