Ólíklegt að Benítez framlengi við Newcastle

Rafael Benítez verður samningslaus næsta sumar.
Rafael Benítez verður samningslaus næsta sumar. AFP

Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Newcastle í ensku úrvalsdeildinni, gæti hætt með félagið í lok tímabilsins en það eru enskir fjölmiðlar sem greina frá þessu. Benítez er sagður afar ósáttur með það að fá ekki að kaupa þá leikmenn sem hann vill fá til félagsins.

Mike Ashley, eigandi Newcastle, setti félagið á sölu, síðasta haust, en honum hefur ekki gengið vel að losna við félagið. Samningur Benítez rennur út næsta sumar og það eru sagðar engar líkur á því að hann skrifi undir nýjan samning, ef hlutirnir breytast ekki hjá félaginu.

Newcastle hefur farið afar illa af stað í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð en liðið er í næst neðsta sæti deildarinnar eftir fyrstu fimm umferðirnar með 1 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert