Klopp vill að Liverpool sé uggvænlegt

Jürgen Klopp
Jürgen Klopp AFP

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, lætur sér það ekki nægja að liðið spili skemmtilegan sóknarbolta undir sinni stjórn heldur vill hann einnig að spilamennska liðsins sé á sama tíma sú ljótasta í deildinni.

Liverpool hefur vakið mikla athygli fyrir vasklega framgöngu sóknarmanna á borð við Mohamed Salah, Sadio Mané og Roberto Firmino en þá hefur bættur varnarleikur einnig séð til þess að liðið hefur unnið alla sex deildarleiki sína á yfirstandandi leiktíð.

Liðið hefur ekki fengið á sig deildarmark á Anfield síðan í febrúar og Klopp vill ólmur sjá sína menn halda því áfram. „Við viljum virkilega vera ljótasta lið deildarinnar og við viljum gera það með góðum knattspyrnumönnum,“ sagði Þjóðverjinn á blaðamannafundi sínum fyrir viðureign Liverpool og Southampton sem hefst klukkan 14 í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert