Gylfi á sínum stað í liði Everton

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði gegn West Ham í síðustu umferð.
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði gegn West Ham í síðustu umferð. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Everton sem mætir Arsenal á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta kl. 15. Gylfi er fremstur á miðjunni, með Theo Walcott og Richarlison hvorn sínu megin við sig og Dominic Calvert-Lewin sem fremsta mann. 

Everton hefur ekki farið vel af stað í deildinni og er liðið aðeins með sex stig í tólfta sæti. Mbl.is fylgist með gangi mála í leiknum og færir ykkur það helsta í beinni textalýsingu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert