Hazard og Mitrovic markahæstir

Aleksandar Mitrovic fagnar marki sínu á móti Watford.
Aleksandar Mitrovic fagnar marki sínu á móti Watford. AFP

Þegar sex umferðum er lokið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eru Eden Hazard úr Chelsea og Aleksandar Mitrovic úr Fulham markahæstir.

Báðir hafa þeir skorað fimm mörk í deildinni. Mitrovic skoraði í 1:1 jafntefli sinna manna gegn Watford á laugardaginn og hefur skorað 5 af 8 mörkum liðsins en Hazard náði ekki að skora frekar en liðsfélagar hans í leiknum á móti West Ham.

Markahæstu leikmenn:

5 - Eden Hazard, Chelsea
5 - Aleksandar Mitrovic, Fulham
4 - Sergio Agüero, Manchester City
4 - Romelu Lukaku, Manchester United
4 - Sadio Mané, Liverpool
4 - Glenn Murray, Brighton

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert