Hef aldrei séð betri aukaspyrnu (myndskeið)

Harry Wilson fagnar marki sínu í gærkvöld.
Harry Wilson fagnar marki sínu í gærkvöld. AFP

„Ég held að ég hafi aldrei séð betri aukaspyrnu,“ sagði Darren Bent, annar af lýsendum Sky Sports í viðureign Manchester United og Derby í ensku deildabikarkeppninni í knattspyrnu á Old Trafford í gærkvöld.

Harry Wilson, hinn 21 árs gamli landsliðsmaður Wales, jafnaði metin með stórglæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu vel utan vítateigs þar sem Sergio Romero markvörður United hreyfði hvorki legg né lið.

Wilson er í eigu Liverpool en var lánaður þetta tímabil til Derby. Þetta annað mark hans á leiktíðinni það má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert