Mark Gylfa frá öllum sjónarhornum (myndskeið)

Gylfi Þór fagnar markinu glæsilega.
Gylfi Þór fagnar markinu glæsilega. AFP

Fólki leiðist ekki að sjá mark Gylfa Þórs Sigurðssonar gegn Leicester City í ensku úrvalsdeildinni sem hann skoraði á laugardaginn.

Markið sem reyndist vera sigurmark leiksins er af mörgum talið vera það besta sem hefur verið skorað í deildinni á leiktíðinni.

Á Youtube-rás Everton má sjá mark Gylfa frá öllum sjónarhornum og óhætt er að segja þetta mark sé stórkostlegt í alla staði en sjón er sögu ríkari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert