Alderweireld inni í myndinni hjá Barca

Toby Alderweireld í Laugardalnum á dögunum.
Toby Alderweireld í Laugardalnum á dögunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Belginn Toby Alderweireld hjá Tottenham Hotspur er ítrekað orðaður við Barcelona þessa dagana en Börsungar gætu þurft að næla í varnarmann í janúar. 

Thomas Vermaelen og Samuel Umtiti eru báðir á sjúkralistanum hjá Barcelona og því er talið líklegt að spænsku meistararnir muni kaupa varnarmann í janúar. Margir fjölmiðlar telja að þar á bæ séu menn hrifnir af Alderwireld enda leikmaður í einu sterkasta landsliði heims um þessar mundir. 

Belginn á auk þess ekki langt eftir af samningi sínum við Tottenham en hann rennur út næsta sumar. Takist Tottenham ekki að framlengja samningi sínum við Belgann gæti verið hyggilegt að selja hann í janúar áður en hann getur farið á frjálsri sölu næsta sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert