Þriðji varnarmaðurinn á sjúkralistann

Sokratis Papastathopoulos í leiknum í Tampere í gær.
Sokratis Papastathopoulos í leiknum í Tampere í gær. AFP

Arsenal gæti verið án Sokratis Papastathopoulos þegar liðið mætir Leicester City á mánudaginn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Grikkinn meiddist í landsleik í gær.

Um ökklameiðsli er að ræða en Grikkir léku í gær gegn Finnum í Þjóðadeildinni og töpuðu 2:0.

Papastathopoulos er varnarmaður og eru þá þrír varnarmenn á sjúkralistanum hjá Arsenal en þar voru fyrir þeir Laurent Koscielny and Konstantinos Mavropanos.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert