José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur verið ákærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir ummæli sem hann viðhafði að loknum leik United og Newcastle á dögunum. Ummælin voru þó ekki látin falla í viðtali.
Mourinho sást segja eitthvað á portúgölsku fyrir framan sjónvarpsmyndavél að því er virðist eftir að United tryggði sér 3:2 sigur í leiknum.
Varalesari var fenginn til að finna út úr því hvað Mourinho lét út úr sér og þar sem Portúgalinn hefur verið kærður má reikna með að munnsöfnuðurinn hafi verið í verri kantinum.
Mourinho og United hafa tíma fram að kvöldmat á föstudag til að bregðast við.