Getur unnið allt saman

Maurizio Sarri knattspyrnustjóri Chelsea.
Maurizio Sarri knattspyrnustjóri Chelsea. AFP

Maurizio Sarri knattspyrnustjóri Chelsea segir að Eden Hazard geti enn orðið besti fótboltamaður í heimi ef hann heldur áfram að spila með Chelsea.

Hazard hefur ekki farið leynt með það að hann hefur mikla löngun til að vinna Gullboltann og að spila fyrir Real Madrid.

„Hann er frábær leikmaður og verður mjög mikilvægur fyrir okkur ef hann heldur áfram að spila með okkur. Ég held að hann geti unnið allt saman, einnig Gullboltann, án þess að spila á Spáni,“ sagði Sarri á fréttamannafundi í dag í aðdraganda leiks Chelsea gegn Manchester United sem eigast við á Old Trafford á morgun.

Hazard hefur verið besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu en hann hefur skorað 7 mörk í fyrstu átta umferðunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert