Aston Villa klifrar upp töfluna

Birkir Bjarnason spilaði allan leikinn á miðjunni hjá Aston Villa …
Birkir Bjarnason spilaði allan leikinn á miðjunni hjá Aston Villa í dag. Ljósmynd/@Aston Villa

Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Aston Villa í ensku B-deildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið vann 1:0-heimasigur gegn Swansea City. Það var Tammy Abraham sem skoraði sigurmark leiksins strax á 8. mínútu en Birkir spilaði allan leikinn á miðri miðjunni hjá Aston Villa. Aston Villa er komið í þrettánda sæti deildarinnar í 18 stig og er nú einungis þremur stigum frá umspilssæti.

Jón Daði Böðvarsson var ekki í leikmannahópi Reading sem vann 3:1-heimasigur á Milwall en það voru þeir Yakou Meite og Sam Baldock sem sáu um markaskorun Reading í leiknum. Þetta var fyrsti sigurleikur Reading síðan 22. september en liðið er í nítjánda sæti deildarinnar með 12 stig, tveimur stigum frá fallsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert