Eins og hann hefði aldrei verið í burtu

Aron Einar Gunnarsson er farinn að spila á ný.
Aron Einar Gunnarsson er farinn að spila á ný. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, fór vel af stað á fyrsta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu með Cardiff City í gær.

Cardiff var án sigurs í fyrstu átta leikjum sínum en vann Fulham í gær, 4:2, og komst með því úr fallsæti með 5 stig en liðið er nú fyrir ofan Fulham, Huddersfield og Newcastle.

Aron lék þarna sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði, eða síðan Ísland tapaði fyrir Króatíu 1:2 í Rostov í lokaleik sínum á HM í Rússlandi 26. júní.

Netmiðillinn Walesonline hrósar Aroni á einfaldan og skýran hátt fyrir frammistöðu sína og gefur honum 8 í einkunn með þessum orðum:

„Fyrsti leikur íslenska landsliðsmannsins á tímabilinu og það var eins og hann aldrei verið í burtu. Mjög öruggur með boltann, vann sín skallaeinvígi og tapaði boltanum sárasjaldan. Honum var líka vel fagnað eftir fyrsta langa innkastið, og að verðleikum.“

Aron er því formlega kominn aftur í ensku úrvalsdeildina en þar lék hann áður 23 leiki með Cardiff tímabilið 2013-2014.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert