Skorar Gylfi í þriðja leiknum í röð?

Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki gegn Fulham á dögunum.
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki gegn Fulham á dögunum. Ljósmynd/Evertonfc.com

Gylfi Þór Sigurðsson verður í eldlínunni með Everton þegar liðið tekur á móti Crystal Palace í eina leik ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Flautað verður til leiks á Goodison Park klukkan 15. Með sigri kemst Everton upp að hlið Wolves með 15 stig í 8.-9. sæti deildarinnar. Everton er í 11. sætinu en Crystal Palce er í 14. sætinu með 7 stig.

Gylfi hefur skorað í síðustu tveimur leikjum Everton og fjögur mörk í síðustu fjórum leikjum með liðinu, jafnmörg mörk og hann skoraði með Everton í deildinni á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert