Aubameyang sá heitasti í deildinni

Pierre-Emerick Aubameyang.
Pierre-Emerick Aubameyang. AFP

Pierre-Emerick Aubameyang, sóknarmaður frá Gabon, er sá leikmaður sem spilar best í ensku úrvalsdeildinni um þessar mundir samkvæmt Sky Sports.

Eins og mbl.is hefur greint frá að undanförnu þá er miðað við síðustu fimm leiki í deildinni og er Gylfi Þór Sigurðsson nú í öðru sæti listans en hann var efstur eftir síðustu umferð.

Aubameyang skoraði tvívegis þegar Arsenal sigraði Leicester City í gær 3:1. Eden Hazard hjá Chelsea er þriðji, Fernandinho hjá City er fjórði og Alexandre Lacazette hjá Arsenal er fimmti. 

Jóhann Berg Guðmundsson hjá Burnley er nú í 18. sæti listans en var í 11. sætinu síðast þegar hann var gefinn út.

Sky Sports segir þrjátíu og fjóra þætti spila inn í einkunnagjöfina sem miðillinn tekur saman. 

Gylfi í leiknum gegn Crystal Palace á sunnudag.
Gylfi í leiknum gegn Crystal Palace á sunnudag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert