Íslendingaliðin töpuðu

Jón Daði Böðvarsson.
Jón Daði Böðvarsson. Ljósmynd/Reading

Íslendingaliðin Aston Villa og Reading töpuðu bæði leikjum sínum í ensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Aston Villa tapaði fyrir Norwich 2:1 þar sem Birkir Bjarnason var ónotaður varamaður í liði Aston Villa, sem er í 16. sæti deildarinnar.

Jón Daði Böðvarsson lék fyrstu 63 mínúturnar fyrir Reading sem tapaði á útivelli fyrir Birmingham 2:1. Reading er í 21. sæti af 23 liðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert