Endurheimtir City toppsætið?

Leikmenn City fagna marki.
Leikmenn City fagna marki. AFP

Tveir leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þar sem Englandsmeistarar Manchester City geta endurheimt toppsætið í deildinni.

Klukkan 15 tekur Manchester City á móti Southampton. Liverpool er stigi á undan City í toppsæti deildarinnar eftir jafnteflið gegn Arsenal á Emirates Stadium í gær. Southampton er hins vegar í 16. sæti deildarinnar.

Klukkan 16 verður flautað til leiks Chelsea og Crystal Palace á Stamford Bridge. Chelsea er í 3. sæti deildarinnar en með sigri kemst liðið upp að hlið Liverpool sem hefur 27 stig. Crystal Palace er í 14. sæti deildarinnar með 8 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert