Gylfi byrjar á Stamford Bridge

Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Everton.
Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Everton. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson er á sínum stað í byrjunarliði Everton er liðið heimsækir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta núna kl. 14:15. Gylfi er búinn að vera í byrjunarliði Everton í öllum deildarleikjum liðsins til þessa. 

Chelsea er í þriðja sæti deildarinnar með 27 stig og Everton í níunda sæti með 18 stig. Mbl.is fylgist vel með leiknum og færir ykkur það helsta í beinni textalýsingu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert