Er að hitna undir Mourinho?

Jose Mourinho
Jose Mourinho AFP

Ef horft er til veðbanka þá virðist vera orðið nokkuð líklegt að Jose Mourinho hætti sem knattspyrnustjóri Manchester United áður en langt um líður. 

Veðbankar bjóða upp á veðmál um það hvaða þjálfari verði næstur til að láta af störfum í ensku úrvalsdeildinni. 

Hjá hinm rótgróna breska veðbanka William Hill er Mourinho fjórði á þeim lista sem stendur. Slavisa Jokanovic hjá Fulham, Mark Hughes hjá Southampton og Mauricio Pochettino hjá Tottenham þykja líklegri til að láta næst af störfum. 

Mourinho er með langtímasamning við United og því yrði kostnaðarsamt fyrir félagið að segja honum upp. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert