Mignolet fær ekki að fara

Simon Mignolet.
Simon Mignolet. AFP

Simon Mignolet fær ekki að yfirgefa Liverpool í janúarglugganum að því er fram kemur í frétt enska blaðsins Daily Mirror í dag.

Liverpool vill ekki missa Belgann, sem hefur mátt sætta sig við að verma varamannabekkinn í öllum leikjum Liverpool í deildinni á þessu tímabili en Brasilíumaðurinn Alisson hefur staðið vaktina á milli stanganna og hefur gert það afar vel.

Mignolet er orðinn þreyttur á bekkjarsetunni og vill fá að fara frá Liverpool þegar opnað verður fyrir félagaskipti í janúar en forráðamenn félagsins eru ekki á því. Mignolet hefur verið í herbúðum Liverpool frá árinu 2013.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert