Hefur aldrei gerst áður

Jürgen Klopp og Pep Guardiola.
Jürgen Klopp og Pep Guardiola. AFP

Eftir tveggja vikna landsliðshlé verður þráðurinn tekinn upp í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á morgun.

12 umferðum af 38 er lokið og í fyrsta skipti í sögu efstu deildar á Englandi eru þrjú lið taplaus eftir tólf umferðir, Englandsmeistarar Manchester City, Liverpool og Chelsea.

Öll verða þau í eldlínunni á morgun á útivöllum. Manchester City sækir West Ham heim, Liverpool mætir Watford og á Wembley eigast við Tottenham og Chelsea í stórleik umferðarinnar.

Leikirnir í 13. umferðinni:

Laugardagur:
15.00 Brighton - Leicester
15.00 Everton - Cardiff
15.00 Fulham - Southampton
15.00 Manchester United - Crystal Palace
15.00 Watford - Liverpool
15.00 West Ham - Manchester City
17.30 Tottenham - Chelsea

Sunnudagur:
13.30 Bournemouth - Arsenal
16.00 Wolves - Huddersfield

Mánudagur:
20.00 Burnley - Newcastle

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert