Austurríkismaðurinn Ralph Hasenhüttl er efstur á óskalistanum hjá Southampton að taka við knattspyrnustjórastarfinu hjá félaginu eftir að Mark Hughes var rekinn frá störfum í morgun. Þetta herma heimildir Sky Sports.
Áætlað er að forráðamenn Southampton ræði við Hasenhüttl í vikunni en hann er fyrrverandi þjálfari þýska liðsins RB Leipzig en lét af störfum hjá félaginu í lok síðustu leiktíðar.
Southampton hefur aðeins unnið einn leik af 14 í deildinni og er í fallsæti, þriðja neðsta sæti.