Mourinho húðskammaði Pogba

Paul Pogba og José Mourinho.
Paul Pogba og José Mourinho. AFP

Enskir fjölmiðlar greina frá því að José Mourinho knattspyrnustjóri Manchester United hafi hellt sér yfir Paul Pogba inni í búningsklefa eftir 2:2 jafntefli liðsins á móti Southampton á St.Marys á laugardagskvöldið.

Enska blaðið Daily Record greinir frá því að Mourinho hafi sagt við Pogba að hann sé veira. „Þú spilar ekki. Þú berð ekki virðingu fyrir leikmönnum og stuðningsmönnum og þú drepur hugarfar góðs fólks sem er í kringum þig. Þú ert eins og maður með inflúensu, með veiru í lokuðu herbergi.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Mourinho lætur Frakkann heyra það en sambandið hefur verið stirt á milli þeirra. Pogba átti ekki góðan dag á móti Southampton en Frakkinn hefur verið mjög óstöðugur í leik sínum með Manchester-liðinu á leiktíðinni.

Manchester United fær Arsenal í heimsókn í deildinni á miðvikudaginn og verður fróðlegt að sjá hvort Mourinho tefli Pogba fram í þeim leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert