Aron Einar í byrjunarliðinu

Aron Einar Gunnarsson skoraði glæsilegt mark á föstudaginn.
Aron Einar Gunnarsson skoraði glæsilegt mark á föstudaginn. Ljósmynd/@cardiffcityfc

Aron Einar Gunnarsson er á sínum stað í byrjunarliði Cardiff sem mætir West Ham í London í kvöld, kl. 19.45, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Aron skoraði sitt fyrsta mark á leiktíðinni í 2:1-sigri Cardiff gegn Wolves í síðasta leik, á föstudag. Eftir þann sigur er Cardiff í 16. sæti með 11 stig, tveimur stigum frá fallsæti. West Ham er í 13. sæti með 15 stig.

Cardiff hafði ekki unnið leik í deildinni þegar Aron hóf að spila eftir meiðsli, í október, en síðan þá hefur liðið unnið þrjá af sex leikjum. West Ham vann 3:0-útisigur á Newcastle um helgina í kjölfarið á 4:0-tapi gegn Manchester City.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert