Hasenhüttl samþykkir að taka við Southampton

Leikmenn Southampton fagna marki gegn Manchester United á laugardaginn.
Leikmenn Southampton fagna marki gegn Manchester United á laugardaginn. AFP

Austurríkismaðurinn Ralph Hasenhüttl hefur samþykkt að taka við stjórastarfinu hjá Southampton og gera þriggja ára samning við félagið að því er heimildir Sky Sports herma.

Southampton rak Mark Hughes frá störfum í gær en hann tók við liðinu í mars á þessu ári. Hasenhüttl er á lausu en hann yfirgaf þýska liðið Leipzig eftir síðustu leiktíð.

Hasenhüttl mun að öllu óbreyttu skrifa undir samning við Southampton í vikunni en hann verður á Wembley annað kvöld og ætlar að fylgjast með Southampton í leiknum gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert